Skip to product information
1 of 5

TAIGA

Grímsey Jakki (GORE-TEX® Professional) - Aðsniðið

Grímsey Jakki (GORE-TEX® Professional) - Aðsniðið

Regular price 66.000 ISK
Regular price Sale price 66.000 ISK
Sale Sold out
Tax included.
Size

Grímsey Jakkinn er fyrir þá sem fara út þegar aðrir halda sig inni.
Jakkinn er vatnsheldur, með góða öndun og ótrúlega slitsterkur en á sama tíma léttur og auðveldur í notkun. Hann hentar jafnt í skyndileg útköll og langar aðgerðir þar sem veður, hreyfanleiki og þol skipta öllu máli.
Flíkin samanstendur af 3ja laga GORE-TEX® Professional skel sem er sérstaklega þróað efni fyrir viðbragðsaðila sem þurfa 100% að treysta á búnaðinn sinn í rigningu, stormi, snjó og slyddu. Professional efnið er hannað til að þola að fá á sig líkamsvessa og olíur og heldur eiginleikum sína þrátt fyrir marga þvotta. 
Grímsey jakkinn pakkast vel, stendur af sér storminn og svíkur þig aldrei hvort sem þú ert í miðri aðgerð, á æfingu eða úti við í óútreiknanlegu íslensku veðri.

Helstu eiginleikar:

  • 3-laga GORE-TEX® Professional – hámarks vörn gegn vatni og vindi
  • Stillanleg hetta með deri – veitir betri vörn fyrir andlit í krefjandi veðri
  • Sýnileika gulur efri hluti og endurskins rendur fyrir aukið öryggi þegar skyggni er slæmt
  • Styrking á álagsflötum – slitsterk svæði á framhandleggjum, olnboga og mjóbaki
  • Auka innra límband á ermum og faldi – lágmarkar rakaupptöku og heldur þér lengur þurrum
  • Endingagóðir og sér límdir innri saumar – auka styrk og endingu jakkans
  • Stórir rúmgóðir vasar – þægilegt aðgengi ef verið er með bakpoka og innangengt op fyrir talstöðva snúru. Vatnsop á vösum leiða bleytu og raka úr vösum.
  • Stillanlegar ermar með frönskum rennilás gefur kost á að þrengja að mismunandi hönskum
  • Tvöföld efnisvörn yfir aðalrennilás – heldur vatni og vindi úti í erfiðum aðstæðum
  • Forsniðnir og sér styrktir olnbogar fyrir aukin þægindi og hreyfanleika
  • Loftræsting undir ermum – rennilás opnar loftop til að stýra hitastigi við mikla áreynslu
  • Stillanlegur faldur – tryggir þægilega og örugga aðlögun

Þyngd (stærð DC40): 700g

Efni: 3-laga GORE-TEX®, 100% polyamide

View full details